Chickas
Would you like to react to this message? Create an account in a few clicks or log in to continue.

Kjúklingabaunaréttur

Go down

Kjúklingabaunaréttur Empty Kjúklingabaunaréttur

Post  glt Tue Nov 30, 2010 3:16 am

Þessum stal ég einhvernttímann á alnetinu og hef eldað hann nokkuð oft.

Kjúklingabaunaréttur

1 laukur
2-3 hvítlauksrif
1 dl rúsínur
1 dl apríkósur (þurrkaðar)
600 g niðursoðnir tómatar
1 msk hnetusmjör
1 tsk Garam Masala
2 dl eplasafi
2 dl vatn
1 bolli kjúklingabaunir
2 msk sítrónusafi
salt og pipar, ef vill
1 dl cashew hnetur

Baunirnar eru lagðar í bleyti í 12 tíma, soðnar í 1 klst og soðinu svo hellt af. Mér finnst gott að gera slatta af baunum í einu síðan frysti ég afganginn.

Saxið lauk og hvítlauk og léttsteikið í olíu. Ávextirnir brytjaðir og þeim bætt á pönnuna ásamt tómötunum, hnetusmjöri, Garam Masala, eplasafa og vatni.
Látið sjóða saman í ca. 20 mín. Baununum blandað saman við réttinn á pönnunni og hitað vel. Að síðustu er sítrónusafanum bætt út í ásamt salti og pipar. Hnetunum er svo stráð yfir réttinn.

Ég hef grjón, mango chautney og kókos með þessu



glt
Admin

Posts : 42
Join date : 2009-10-05

Back to top Go down

Back to top


 
Permissions in this forum:
You cannot reply to topics in this forum